top of page

Open CALL: Now WHAT?

Plan-B Art Festival will take place for the 5th time from August 6th to 9th 2020. Plan-B Art Festival is a contemporary art festival held every year in the small picturesque town of Borgarnes in the West Region of Iceland. A ca 1,5h outside of the capital, Reykjavík,

 

During this anniversary year we are facing times different to anything we have ever known caused by COVID-19. This is how ever an opportunity for growth, experiments and expansion, which happens to be what Plan-B is all about!

 

We call for artists to participate in the Plan-B Art Festival 2020. We ask artists to submit their proposals and CV's by e-mail to planbartfestival@gmail.com by midnight (in Iceland (GMT)) on the 26th of May. All inquires will be answered. Proposals can be fully developed artworks and projects or unformed ideas, adaptable to the variety of untraditional venues.

 

We ask artists to submit work from all fields of fine art. Artists chosen to participate will receive financial support for their participation.

 

---------------------------------

Additional information and guidelines regarding uncertain status or restrictions of events and gatherings. The festival will be held one way or the other:

 

Currently, we are facing restrictions of events and gatherings in Iceland due to the pandemic of COVID-19. These restrictions will serve as guidelines of how we would proceed with the festival if the situation will not change in any way.

 

The restrictions are following:
Gatherings of more than 20 people in an event or venue are forbidden

People should keep the distance of 2 meters between them.

 

Plan-B´s answer to these guidelines are as following if the situation will not change:

A Car-theater form of streaming of performances and/or video works

Window-galleries in Borgarnes

An Outdoor exhibition/art works

Outdoor performances

Site specific works

Feel free to contact us for any questions you might have at planbartfestival@gmail.com

 

 

 



Plan-B Art Festival fer fram í fimmta skipti dagana 6. til 9. ágúst 2020. Hátíðin beinir sjónum sínum að samtímalist og er haldin árlega í Borgarnesi.

 

Á þessu afmælisári horfum við fram á breytta stöðu vegna COVID-19. Við lítum hins vegar á þetta sem tækifæri fyrir vöxt, tilraunir og þenslu sem er einmitt kjarni Plan-B!

 

Við óskum eftir umsóknum listafólks fyrir Plan-B Art Fetival 2020. Listamenn skulu senda tillögur, ferilskrá og ferilmöppu á planbartfestival@gmail.com fyrir miðnætti þann 26. maí. Öllum umsóknum verður svarað. Bæði er hægt að sækja um með fullmótuð verk eða verk í vinnslu sem hægt væri þá að laga að hinum margslungnu rýmum hátíðarinnar.

 

ATH: Á vefsíðu hátíðarinnar (www.planbartfestival.com) má sjá þær útfærslur sem við komum til með að nýta við framsetningu verka ef til þess kemur að takmörkun á samkomum og viðburðum verður enn í gildi á tíma hátíðarinnar.

 

Við óskum eftir verkum frá öllum sviðum sjónlista. Listamenn sem valdir verða til þátttöku fá greitt fyrir framlag sitt. 

 

-------------------------------

Viðbótarupplýsingar varðandi þær reglur og viðmið sem eru í gildi í dag varðandi viðburði og samkomur vegna COVID-19 faraldursins:
 

Hátíðin verður haldin með einum eða öðrum hætti.

 

Tilmæli og viðmið í dag eru eftirfarandi:

Í dag er ekki leyfilegt að halda samkomur þar sem fleiri en 20 koma saman.

Í gildi er viðmið um að 2 metrar séu á milli fólks

 

Plan-B kemur til móts við þessi tilmæli og er hér miðað við að þessum reglum verði ekki breytt ef staðan verður sú sama:

Bílabíó, útfærsla á streymi á gjörningum og/eða myndbandsverkum

Gluggagallerí víða um bæinn Borgarnes

Útilistaverk/sýning utandyra

Gjörningar undir berum himni

Verk unnin sérstaklega út frá/um bæinn Borgarnes

 

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband á planbartfestival@gmail.com.

​Óskað eftir umsóknum: Hvað nú?

bottom of page